Lýsing
Brooks Ghost Crew sokkarnir eru frábærir hlaupasokkar. Þeir eru fóðraðir á álagsstöðum (undir hæl fyrir lendingar og undir tábergi fyrir hvert nýtt skref). Þetta er til þess að minnka núning og sporna við blöðrumyndun.
Þeir styðja vel við iljabogann og haldast þannig á sínum stað og snúast ekki á fætinum meðan þú hleypur. Efnið hleypir af sér raka og svita og kemur í veg fyrir að lykt og bakteríur safnist fyrir.