Lýsing
Nánast allir fremstu þolíþróttamenn í heiminum kjósa að nota Maurten.
GEL 100 Caf gelið frá Maurten inniheldur 100 mg af koffíni – sem samsvarar um það bil einum kaffibolla.
Úr gelinu færðu 25 grömm af kolvetni úr einstakri blöndu frúktósa og glúkósa (í hlutföllum 0,8:1)
Gelið er hægt að nota eitt og sér í styttri æfingum eða með öðrum Maurten vörum í lengri æfingum til að tryggja að þú hafir næg kolvetni og orku.
Ólíkt mörgum öðrum gelum á markaðnum, sem eru oft eins og vökvi eða síróp, eru Maurten gelin stífari og hafa gellíkari áferð. Með sérstakri Hydrogel tækni fara kolvetnin strax frá maganum niður í þarmana þar sem þau frásogast hraðar. Þetta gerir það líka að verkum að minni hætta er á að gelin valdi magaóþægindum.