fbpx

Ghost 16 – Electric Blue/Navy/Lemon

HerraBirgðastaða: In Stock
SKU: 1104181d421
  • Mest seldi hlutlausi hlaupaskórinn í Bandaríkjunum undanfarin ár
  • Mjúkur, vel dempaður og léttur
  • Hentar til dagsdaglegra nota, í vinnu eða í hlaup
  • Hentar byrjendum og lengra komnum hlaupurum
  • Hæðarmismunur milli hæls og tábergs er 12 mm

Tilboð endar:

24.990 kr.

Litur:

14 daga
skilaréttur

Frí sending í póstbox/pósthús
á pöntunum yfir 15000kr.

Vörunúmer: 1104181d421 Flokkar: , Merkimiðar: ,

Lýsing

Brooks Ghost er mest verðlaunaði skór síðustu 15 ára í stærsta hlaupatímariti heims Runner’s World Magazine og hafa alls 8 sinnum verið kosnir skór ársins. Þeir eru mjúkir, veita frábæra höggdempun og eru með hlutlausan stuðning. Þó skórnir séu hannaðir sem hlaupaskór henta þeir frábærlega í göngur, í vinnu og til daglegrar notkunar

Miðsólinn inniheldur DNA Loft v3 höggdempun sem er blanda af geli og höggdempandi EVA frauðefni. Þessi blanda veitir jafnari höggdempun óháð niðurstigi og þyngd. Hönnunin á miðsólanum er gerð til að færa álagið úr niðurstiginu út til hliðanna og minnkar þar með álag upp stoðkerfið og ver því hné, mjaðmir og bak einstaklega vel. Á Ghost 16 er nýr sóli sem er enn meira höggdempandi en fyrri týpur af Ghost, sólinn er gerður úr efni sem heitir RoadTack sem er endingargott endurunnið efni. Einnig er Ghost 16 enn léttari en eldri týpur Ghost, en það er búið að auka við loftdempunina í miðsólanum.

Yfirbyggingin er úr svokölluðu ‘Engineered Mesh’ sem er ofið þéttar á þeim svæðum sem þurfa meiri styrk og stuðning en opnara á öðrum svæðum til að tryggja hámarks öndun. Yfirbyggingin er 3D prentuð og aðlagast fæti betur en áður og hælkappinn er stífur og stöðugur með mjúkri og þægilegri bólstrun sem veitir góðan stuðning í niðurstiginu, skórnir eru að sjálfsögðu með lausum innleggjum fyrir þá sem nota sérgerð innlegg.

Það er ekki að ástæðulausu að Ghost er ár eftir ár mest seldi og mest verðalaunaði hlutlausi skórinn í hlaupabúðum, bæði í Evrópu og USA. Þetta er skór sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum í hvaða vegalengd sem er. Frábær í hlaupin, göngu á hörðu undirlagi og frábær sem vinnuskór ef þú ert að standa eða ganga á hörðu gólfi.

Hæðarmismunur hæls og tábergs á Ghost 16  er 12 mm og hann vegur 281g í karlastærð 42,5 og 255g í kvennastærð 40. Áætluð ending er 800-1000km. Fer eftir undirlagi, skekkju í fótum, álagið í niðurstigi, þyngd og fleiri líkamlegum- og umhverfisþáttum.

Frekari upplýsingar

Stærð

41, 42.5, 43, 44, 44.5, 45, 45.5, 46, 46.5, 47.5, 48.5

Brand

Brooks

0
    0
    Karfa
    Karfan er tómTil baka í verslun
        Við mælum með SmellWell fyrir föt og skó
        Við mælum með SmellWell fyrir föt og skó