Description
Lýsing
Brooks Ghost er mest verðlaunaði skór síðustu 15 ára í stærsta hlaupatímariti heims og Runner’s World og hafa alls 8 sinnum verið kosnir skór ársins. Þeir eru mjúkir, veita frábæra höggdempun og eru með hlutlausan stuðning. Þó skórnir séu hannaðir sem hlaupaskór henta þeir frábærlega í göngur, vinnu og til daglegrar notkunar.
Ghost 15 er skór sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum í hvaða vegalengd sem er. Frábær í hlaupin, göngu á hörðu undirlagi og frábær sem vinnuskór ef þú ert að standa eða ganga á hörðu gólfi.
Hæðarmismunur hæls og tábergs á Ghost 15 er 12 mm og hann vegur 286g í karlastærð 42,5. Áætluð ending er 800-1000km. Fer eftir undirlagi, skekkju í fótum, álagið í niðurstigi, þyngd og fleiri líkamlegum- og umhverfisþáttum.