Description
Brooks Cascadia eru vinsælustu utanvegaskórnir hjá Brooks. Cascadia hentar vel bæði í göngur og utanvegahlaup. Grófur sóli gefur gott grip. Cascadia er sá skór frá Brooks sem hentar best fyrir brattar brekkur.
Cascadia hafa reynst frábærlega í íslenskri náttúru. Þeir eru stöðugir og veita góða höggdempun. Þeir eru til dæmis frábærir á Laugarveginn og í önnur ultra maraþon
Cascadia 18 er með sérhannaða jafnvægisplötu í miðsóla sem hannað er eftir klaufum fjallageitar. Vegna þessa er nú enn betra grip undir tábergi á hvaða undirlagi sem er.
Hæðarmismunur er 8mm. Áætluð ending er 800-1200km. Fer eftir þyngd, skekkjum í fótum, álagi í niðurstigi, undirlagi og því veðri sem skórinn er notaður í o.fl.