Lýsing
Brooks Dash 1/2 zip peysa sem er létt og andar mjög vel. Lang vinsælasta flíkin okkar frá Brooks og hentar í hvaða íþróttir/tilefni sem er.
Hún er hálfrennd upp í háls með kraga og hentar því bæði sem base lag og í göngur eða ræktina. Er úr DriLayer® og færir svita og bleytu vel út og dregur ekki í sig bleytu og lykt.
Peysan er síðerma og með lykkjum/götum fyrri þumlana svo hún renni ekki upp ef maður er í henni innanundir einhverju.
Allur fatnaður frá Brooks er endur unnin framleiðsla og gaman að segja frá því að efnið sem notað er í peysuna jafnast á við 11 plastflöskur!