fbpx

Brooks Dare Zip Run Bra

DömuBirgðastaða: In Stock
SKU: 350075001
  • Renndur að framan
  • Með öryggiskrækju að innan
  • Laserskorinn og saumalaus
  • Nuddar ekki og andar vel

Tilboð endar:

8.990 kr.

Litur:

14 daga
skilaréttur

Frí sending í póstbox/pósthús
á pöntunum yfir 15000kr.

Lýsing

Brooks Dare Zip toppurinn er þægilegur að fara í og úr þar sem hann er renndur að framan. Hann er laserskorinn og saumalaus til að minnka nudd og núning. Hann er úr DriLayer ®HorsePower sem færir svitann vel út og dregur ekki í sig og er með götun í strengnum á bakinu til að auka öndun. Það eru innbyggðar skálar til að passa betur og hylja geirvötur að þær sjáist ekki gegnum efnið. Í rennilásnum er tvær læsingar, annarsvegar j-krækja á bakvið rennilásinn og svo í rennilásnum sjálfum þegar hann beinir niður. Einnig er faldur yfir rennilásnum neðst til að minnka núning. Þessi toppur er í flokknum „holds me in“ og veitir því hámarksstuðning og því frábær í hlaup.

Þessi toppur kemur í stærðum ummál: 30-40 (65-90 EU) og skálar: A/B, C/D, og DD/E.

 

Brooks hafa í mörg á verið að mastera það að gera hinn besta hlaupatopp. Topparnir þeirra hafa undirgengst marga klukkatíma prófanir og hafa verið vísindi, sviti og tár unnið að því.

Brooks vinnur í nánu samstarfi við Research Group in Brest Health í háskólanum í Portsmouth við að rannsaka hreyfingu brjósta við hlaup upp á að hanna hinn fullkomna hlaupa top. Þeirra markmið er að láta konur finna fyrir fullkomnun stuðningi og þægindum við hlaup og aðra hreyfingu.

Til þess að láta þessi markmið verða að raunveruleika vinnur Brooks og rannsóknarhópurinn í háskólanum í Portsmouth mikið með konum í öllum stærðum og gerðum til þess að prófa fyrir sig toppana allt upp í skálastærð E, en ekki bara í B skál sem er staðlað hjá flstum framleiðundum.

Brooks eru ekki bara að reyna gera góðan hlaupatopp heldur besta hlaupatopinn sem markaðurinn hefur upp á að bjóða. Þeir eru upphafið af framtíðinni með hlaupatoppa.

„OUR BRAS ARE DESINGED TO HOLD YOU IN, NOT HOLD YOU BACK“

Dare hlaupatoppar eru hannaðir til að mæta miklum álagi frá brjóstum við hlaup. Þessi lína endurspeglar bæði nýjustu vísindi á sviði brjóstaheilsu sem og innsýn frá þúsundum kvennhlaupara. Þetta er fyrsti toppurinn sem þeir segja vera Run-Ready Support (Stuðningur tilbúinn fyrir hlaup). Brooks leggur mikið í toppana sína og leggja áhærslur á að minnka nudd og núning og gera það með því að laser skera efnið og fela strenginn undir brjóstin svo það séu ekki auka saumar sem geta nuddað.

Mögulega mikilvægasti hlutinn af þeirra framleiðslu á toppum er úrvalið. Þeir framleiða margar mismunandi gerðir af toppum og margar mismunandi stærðir í ummáli og skálastærð fyrir allar konur hvort sem það eru stór eða lítil brjóst og að það veiti hámarks stuðning og þægindi fyrir hvern og einn.

Frekari upplýsingar

Stærð

36de, 38ab, 38cd, 38de, 40ab, 40cd, 40de

Brand

Brooks

0
    0
    Karfa
    Karfan er tómTil baka í verslun
        Við mælum með SmellWell fyrir föt og skó
        Við mælum með SmellWell fyrir föt og skó